Djók í brókJónatan Gíslason


Þar sem efnahagsmál í öllum heiminum og reyndar aðallega á íslandi er mikið í umræðunni þessa dagana þá langaði mér að setja inn stuttar lýsingar fyrir byrjendur um hvernig fyrirtæki virka í mismunandi hagkerfum.

SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSK FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÍSLENSK FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
 DANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Íslendingar kaupa báðar kýrnar.

JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim.

ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.


ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.

SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki.

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.

ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...

verði ykkur að góðu!!


Viđ virđumst vera í djúpum skí*!!!Jónatan Gíslason

Ekki eru þær glaðlegar fréttirnar sem maður heyrir þessa dagana af Efnahagslífinu. Reyndar er ég ekki farinn að finna fyrir þessu ennþá en ég er ansi hræddur um að hin venjulegi maður sé ekki farinn að finna fyrir kreppunni af fullum þunga ennþá. Bankamenn og aðrir sem vinna í fjármálageiranum Finna vissulega vel fyrir þessu sem og fólk sem  sem var búið að fjárfesta peningunum sínum í allskonar bréfum og drasli. En Blanki maðurinn sem engan pening á og er ekki að tapa neinu(þannig) er ekki farinn að finna fyrir þessu af fullum þunga ennþá. En Ég er ansi hræddur um að það eigi eftir að breytast og gæti það orðið hratt ef ekki verður gert nóg til að komast til móts við fólkið og fyrirtækin. Ef samdráttur verður mikill fer fólk að missa vinnuna og þá verður  ein stór keðjuverkun sem gæti endað illa. Það er ekki laust við það að innst inni er maður að verða smeikurr um að maður gæti misst vinnuna og Jafnvel Steina líka. Ég tel þó nokkuð litlar líkur á því. Svo heyrir maður mikið talað um Gjaldþrot, sundraðar fjölskyldur og meira að segja er ég farinn að heyra af sjálfmorðum hjá fólki sem tapað hefur aleigu sinni og jafnvel annara í þessari svaka kreppu sem nú gengur yfir, sem mér fynnst hræðilegt því ég trúi því að það sé alltaf hægt að finna lausn á hlutunum,svo fynns mér þetta bara aumingjaskapur að skilja fjölskilduna eftir í skítnum af því að þú þolir ekki meir. En þegar allt er svona svartsýnt og slæmar, verri og verri fréttir berast með hverjum deginum þá er ekki laust við að maður stoppi í smá stund, horfi í kring um sig og átti sig  á því hvað maður er ógeðslega heppin. Ég á engan pening til að tapa, þak yfir höfuðið, barn og annað á leiðinni, Yndislega konu, frábæra fjölskyldu og frábæra vini. Ég þarf ekkert meira, alls ekkert. Lífið gæti varla verið mikið betra og við þessar aðstæður átta maður sig á því að það þarf ekki plasmasjónvar, nýjan bíl, og allt það til að hafa það gott og vera hamingju samur. Svo aðég vill bara segja eitt, Ef þú ert að farast úr stressi yfir efnahagsástandinu. Stoppaðu bara og horfðu í kring um þig, Ég get lofað því að þú verður fljótur að sjá að það eru aðrir hlutir sem skypta meiru máli. Þótt þú getur ekki haft það eins gott og þig langi eða lifað jafn hátt með mikið af flottum græjum Þá eru aðrir hlutir sem skypta meira máli.
Og eitt að lokum. Vist að Kaninn vildi ekki vera sannur vinur okkar og hjálpa okkur á þessum erfiðu tímum og gáfu okkur bara fingurinn,Þá fórum við bara að leita að nýjum vinum og fundum þá. Enga aðra en Rússa, sem mér reyndar finnst bara ágætt, þannig að ég ákvað að skella inn tveimur myndum þeim til heiðurs
Nýr rúsíslenskur peningaseðill rúbkr
nýji peningaseðillinn okkar
nýju seðlabankastjóranir
þar sem það á að fara að reka Davíð Oddson seðlabankastjóra Þá fannst mér við hæfi að skella inn mynd að nýju seðlabanka stjóronum sem koma með láninu frá rússlandi, þeir Vasilín og Pennsilín

FUC.. Aweso.....Jónatan Gíslason

ÉG hef nú vitað það í nokkurn tíma að ég sé ómótstæðilegur í augum kvennaSvalur og þar sem að ég er Jafnréttissinni þá fannst mér alveg SVAKALEGA óréttlátt að bara konur og samkynhneigðirkarlmenn gætu notið þess augnakonfekts sem kallað er Jónatan GíslasonUllandi Svo að ég, með smá hjálp frá nýjustu tækni internetsins gerði þessa mynd hér að neðan svo að gagnkynhneigðir karlmenn fengju líka að njóta mín. Og hver veit nema að einhverjir fái bara í hann....
ég
Djöfull er ég awesomeSvalur

EđlisfrćđiJónatan Gíslason

Kæra Dagbók........ (þetta verður ekki gamalt)

Nú nýverið var ræstur LHC öreindahraðall í sviss sem á eftir að gjörbilta eðlisfræði og þekkingu okkar á alheiminum til þessa. Margir héldu að við það að ræsa þennan risa hraðal (sem er 27 kílómetra hringur) myndi heimurinn farast en ekkert gerðist...Ennþá. Hin eina sanna tilraun er ekki fyrr en eftir 3vikur til mánuð þegar öreindirnar í hraðalnum byrja að rekast á hver aðra, Þá veit enginn ennþá alveg hvað gerist, en vísindamenn eru þó næstum alveg vissir að það verður ekki heimsendir.
Þetta hljómar kanski frekar leiðinnlegt en eins og þeir vita sem þekkja mig að þá er ég mikill áhugamaður um stjörnufræði og eðlisfræði.
Eini gallinn er hinsvegar sá að ég var aldrei neitt voða góður í stærðfræði sem barn, en hef verið að reyna að bæta það nýlega með alls kyns reyningi og náskeiðum. Það er nefnilega alveg ótrúlegt hvað er hægt að reikna mikið út. Ég er t.d búinn að vera með einn ákveðinn jöfnu í huga í nokkur ár og loksins tókst mér að leysa þessa jöfnu og vildi bara deila henni með ykkur.
 
Sko stærðfræðin borgar sig
Sko það borgar sig að læra stærðfræði. þessi einfalda jafna getur Bjargað manni frá alls kyns veseni hehehe

ERT EKKI AĐ GRÍNAST!!!!Jónatan Gíslason

Kæra Dagbók... Svalur
Já sæll.... ég fór á mína fyrstu Júdóæfingu áðan og FO** Skömmustulegurhvað þetta er FO*****Skömmustulegur erfitt, ég vissi að Upphitunin væri Hell en ALDREI gerði ég mér grein fyrir því að að Glíma við andstæðing, hvort sem það er gólfglíma eða standandi glíma, að maður( eða ölluheldur ég) væri alveg búinn eftir svona 1 mín í glímu og þá meina ég sko ALVEG búin. Ég er nú ekki búin að hreyfa mig mikið síðan ég var svona 16 ára (semsagt 10 ár) og er ég orðinn 126,3 kg ,vigtaði mig áðan, og hef ekkert þol. Svo var þarna handbollta peyji sem er búinn að vera í íþróttum allt sitt líf, með sixpack og læti og hann var alveg sprunginn, Hvernig haldiði þá að ég hafi verið.
En þetta var  helvíti skemmtilegt og stefni ég á að halda þessu áframm og ná mér í nokkur bellti. og miða við átökin á þesari æfingu þá verð ég kominn með sixpack um jólin og læti. Eeeeeða svona næstum því.
Jæja ég er orðinn þreyttur í puttonum eftuir þessa æfingu þannig að ég segi þetta bara gott.

ps. Hjalti  Drullaðu þér svo með mér á eina æfingu bara til að prófa!!! 

on the way......Jónatan Gíslason

Vitiði ég er að áta mig meira á því með hverjum deginum hvað ég er frábær...... en nóg um mig
Kæra dagbók
Það er ný metallica plata á leiðinni og djöfull er mér farið að hlakka til. Kvikindið á að koma í verslanir 12 sept og af því tilefni er ég búin að setja inn niðurtalningu í minni fyrstu færslu á þessari bloggsíðu. Ég er búinn að hlusta á 3 lög af nýju plötunni sem heitir "Death magnetic" (svalt nafn)  Sem lofa bara nokkuð góðu. Mér fannst síðasta  Plata (St.Anger) góð en verð samt að viðurkenna að mér fynnst hún þeirra slappasta verk hingað til og held ég að með henni hafi botninum verið náð. Annar er ég svo milill "Metallicaholic" að mér myndi örugglega finnast allt gott frá metallica.
og munið ég er awesome!!!




Kćra DagbókJónatan Gíslason

Kæra dagbók.... Þá er ég a spá í að prófa Bloggar.is.
Ég veit að ég hef bloggað mjög lítið undanfarið á eða svo og fynnst þá sumum kanski skrítið að ég sé að fá mér nýja blogsíðu,
En í u.þ.b 55-70%tilvika sem ég reyni að blogga á Blogcentral þá kemur einhver helvítis villumelding og síðan bilar eitthvað eða dettur út. Þetta er búið að ganga á nógu lengi svo er ég líka mjög óánægður með breytingarnar hjá þeim.
Svo Hér er ég kominn og ætla nú að fara að verða duglegri við að blogga dáldið. það er mikiðí gangi hjá mér núna með Barn á leiðinni og að fara að æfa júdó í vetur til að reyna að létta sig aðeins. spurning hvernig það á efitr að ganga...
En held að ég segi þetta bara gott fyrirfyrstu færslu Takk
Takk fyrir mig

Rock onJónatan Gíslason

 

 

Auglýsing

Undirsíđukubbur

Prófíll

  • Nafn: Jónatan Gíslason
  • Stađur: Hafnarfjörđur
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Tćknimađur aka. rafvirki
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ
  • Um mig: Ég er AWSOME peyji frá eyjum, Búsettur í hafnarfirđi og vinn hjá Securitas. hef áhuga á Kraftlyftingum Stjörnufrćđi og júdó. Ég á einn son og međ eitt barn á leiđinni ţegar ţetta er ritađ
  • Annađ: bara allt annađ sko

Klukkan

Leit

Könnun

Er ţetta máliđ??? eđa á mar ađfara á Blogcentral aftur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Verđ 30 ára eftir